Fjarnám í meiraprófi um allt land
Fjarnámskeiðin okkar ná til allra landsmanna. Kennslan fer fram á fjarfundum í rauntíma með kennara, á fastri stundaskrá.
Fjarnámskeiðin ná yfir allt land
Aktu ökuskóli býður upp á fjarnámskeið sem ná til allra landsmanna. Fjarnámskeiðin gera það mögulegt að taka námið hvar sem er á landinu. Kennslan fer fram á fjarfundum í rauntíma með kennara, á fastri stundaskrá.
Meirapróf í fjarnámi
Fjarnámskeiðin okkar í meiraprófi (aukin ökuréttindi) eru hönnuð til að hjálpa þér að ná þínum markmiðum hvort sem þú vilt öðlast réttindi til að aka vörubifreið, hópbifreið eða til farþegaflutninga (B/far).
Grunnnámið er tvær helgar og framhaldsnámið allt að tvær helgar, eftir því hvað þú vilt afla þér ökuréttinda í.
Námskeiðin eru haldin reglulega yfir árið og eru birt á heimasíðunni og í fréttakerfinu okkar.
Endurmenntun atvinnubílstjóra í fjarnámi
Endurmenntunarnámskeið fyrir atvinnubílstjóra eru einnig í boði í fjarnámi. Námskeiðin eru hönnuð til að bílstjóri búi við aukið öryggi í starfi, sé meðvitaður um öryggisreglur og bæti varnarakstur sinn.
Staðnámskeið og verkleg kennsla
Staðnámskeið eru haldin eftir þörfum og er staðsetning auglýst hverju sinni.
Verkleg kennsla og próf fara fram í Reykjavík, á Akureyri og á Sauðárkróki, og víðar ef þörf krefur.