Námið skiptist í bóklegan og verklegan hluta. Fyrst þarf að ljúka bóklegu grunnnámi (52 stundir) og sérnámi, síðan standast skriflegt próf hjá Frumherja. Að því loknu tekur við verkleg þjálfun hjá ökukennara sem endar með verklegu prófi.
Meirapróf
Ökuréttindi fyrir vörubifreiðar, hópbifreiðar og leigubíla
Verð eftir réttindum þínum
Þú borgar ekki fyrir tíma sem þú hefur setið · Sjá verðlista
52 kennslustunda bóklegt grunnnám
Fjarfundir með kennara, þú tengist hvaðan sem er af landinu
Allt að 180.000 kr. styrkur á ári
Efling/Starfsafl, VR og Landsmennt greiða 90% af kostnaði →Aukin ökuréttindi
Meirapróf er samheiti yfir nám til aukinna ökuréttinda. Allir sem sækja nám til aukinna ökuréttinda þurfa að sitja bóklegt grunnnám sem er 52 kennslustundir. Námskeiðið er skilyrði fyrir ökuréttindum til að aka vörubifreiðum, hópbifreiðum og leigubifreiðum í atvinnuskyni. Námsefnið tekur til umferðarsálfræði, umferðar og samfélags, bíltækni og skyndihjálpar.
Hægt er að hefja námið allt að 6 mánuðum fyrir aldursmörk hvers réttindaflokks.
Vörubifreiðar
Bifreið sem er gerð fyrir allt að 8 farþega og með heildarþyngd 3.500-7.500 kg.
- Aldurstakmark
- 18 ára
- Námstími
- 62 kennslustundir + 6 ökutímar (8 fyrir atvinnuréttindi)
- Forkrafa
- B réttindi
- Verð
- 220.000 kr.
C1 bifreið með eftirvagni sem vegur meira en 750 kg.
- Aldurstakmark
- 18 ára
- Námstími
- 4 kennslustundir + 4 ökutímar
- Forkrafa
- C1 eða C réttindi
- Verð
- 90.000 kr.
Bifreið sem vegur meira en 7.500 kg, þar með talið til vöruflutninga í atvinnuskyni.
- Aldurstakmark
- 21 árs
- Námstími
- 84 kennslustundir + 12 ökutímar
- Forkrafa
- B réttindi
- Verð
- 395.000 kr.
Eftirvagnsréttindi fyrir C bifreið með eftirvagni sem vegur meira en 750 kg. Felur í sér C1E og BE.
- Aldurstakmark
- 21 árs
- Námstími
- 4 kennslustundir + 7 ökutímar
- Forkrafa
- C réttindi
- Verð
- 175.000 kr.
Hópbifreiðar
Bifreið sem er allt að 8 metra löng og gerð fyrir allt að 16 farþega.
- Aldurstakmark
- 21 árs
- Námstími
- 78 kennslustundir + 6 ökutímar (8 fyrir atvinnuréttindi)
- Forkrafa
- B réttindi
- Verð
- 295.000 kr.
D1 bifreið með eftirvagni sem vegur meira en 750 kg.
- Aldurstakmark
- 21 árs
- Námstími
- 4 kennslustundir + 4 ökutímar
- Forkrafa
- D1 eða D réttindi
- Verð
- 90.000 kr.
Bifreið sem er gerð fyrir fleiri en 8 farþega, þar með talið til farþegaflutninga í atvinnuskyni.
- Aldurstakmark
- 23 ára
- Námstími
- 100 kennslustundir + 12 ökutímar
- Forkrafa
- B réttindi
- Verð
- 450.000 kr.
D bifreið með eftirvagni sem vegur meira en 750 kg. Fylgir CE ef þú hefur D réttindi.
- Aldurstakmark
- 23 ára
- Námstími
- 4 kennslustundir + 7 ökutímar
- Forkrafa
- D réttindi
- Verð
- Fylgir CE
Leigubifreiðar
Námsfyrirkomulag
Grunnnám - 52 kennslustundir
Allir nemendur þurfa að ljúka bóklegu grunnnámi sem er 52 kennslustundir. Námið skiptist í fjóra hluta:
- Umferðarsálfræði: 12 kennslustundir
- Umferð og samfélag: 12 kennslustundir
- Bíltækni: 12 kennslustundir
- Skyndihjálp: 16 kennslustundir
Sérnám og verklegt nám
Eftir grunnnámið tekur við sérnám og verklegt nám fyrir þann réttindaflokk sem þú velur. Sérnámið getur til dæmis verið Stór ökutæki, Ferða- og farþegafræði eða Eftirvagnar stórra ökutækja. Fjöldi kennslustunda og ökutíma fer eftir flokknum.
Aðstoð stéttarfélaga
Mörg stéttarfélög styrkja aukin ökuréttindi verulega - oft allt að 90% af kostnaði. Þetta getur lækkað kostnað um hundruð þúsunda króna.
- Efling/Starfsafl: Allt að 180.000 kr. á ári (540.000 kr. uppsafnað)
- VR: Allt að 180.000 kr. ef ökuréttindi tengjast starfi
- Landsmennt: Allt að 180.000 kr. fyrir aukin réttindi
Sjá nánar um styrki frá stéttarfélögum.
Gagnlegar upplýsingar
Nánari upplýsingar um nám og réttindi má finna á vef Samgöngustofu:
Algengar spurningar
Bóklega hlutann tekur þú á fjarfundum í rauntíma með kennara eða í staðnámi. Fjarfundirnir eru á fastri stundaskrá og þú tengist hvaðan sem er af landinu.
Verkleg kennsla hefst eftir að bóklegu prófi er lokið. Fjöldi ökutíma er breytilegur eftir réttindaflokkum, en alltaf þarf að uppfylla lágmarksfjölda samkvæmt reglugerð. Náminu lýkur svo með verklegu prófi fyrir hvern flokk.
Fullt verð hvers réttindaflokks stendur á kortunum hér að ofan og öll verð innihalda bæði bóklegt og verklegt nám. Ef þú ert þegar með einhver aukin réttindi borgar þú minna, því bóklega grunnnámið og hluti sérnámsins er sameiginlegur.
Veldu réttindin sem þú hefur og þau sem þú vilt bæta við, þá reiknast þitt verð: sjá verð miðað við þín réttindi.
Já, flest stéttarfélög styrkja aukin ökuréttindi þar sem þau teljast starfsmenntun. Efling/Starfsafl greiðir allt að 180.000 kr. á ári (540.000 kr. uppsafnað). Hafðu samband við þitt stéttarfélag til að kanna möguleika.
Eldri ökuréttindi geta haft áhrif á hvaða réttindi þú þarft að bæta við. Til dæmis veita ökuréttindi útgefin frá og með 12. apríl 1960 og fyrir 1. mars 1988 almennt rétt til að aka D1-flokki, en ekki hópbifreið til farþegaflutninga í atvinnuskyni. Best er að láta yfirfara ökuskírteinið áður en þú velur námsleið.
Já, ef þú ert með gilt skyndihjálparskírteini (ekki eldra en þriggja ára) sem uppfyllir kröfur um lengd (minnst 16 kennslustundir) er hægt að fá það metið inn í námið. Framvísa þarf skírteini til staðfestingar.
Þú þarft fyrst að hafa fullgild B-réttindi. Síðan skráir þú þig á námskeið og skilar umsókn um nýtt ökuskírteini til sýslumanns fyrir hvern réttindaflokk sem þú ætlar að taka. Umsókninni þarf að fylgja heilbrigðisvottorð sem er ekki eldra en þriggja mánaða, og ljósmynd ef mynd er ekki til í kerfinu.
Ef þú fellur á bóklegu prófi þarftu að bíða í eina viku áður en þú mátt taka það aftur. Fyrir verklegt próf þarf yfirleitt 1-2 kennslustundir til viðbótar áður en próf er tekið aftur. Flestir standast við fyrstu tilraun með góðum undirbúningi.
Nánar um hvern réttindaflokk
Hver réttindaflokkur er með sína eigin síðu með kröfum, uppbyggingu náms og verði.
C1 réttindi
Vörubifreið yfir 3.500 kg að 7.500 kg, 18 ára.
C réttindi
Vörubifreið yfir 3.500 kg án efri marka, 21 árs.
CE réttindi
Eftirvagn yfir 750 kg aftan í C bifreið, 21 árs.
C1E og D1E réttindi
Eftirvagn yfir 750 kg aftan í C1 eða D1 bifreið.
D1 réttindi
Hópbifreið að 8 metrum, mest 16 farþegar, 21 árs.
D réttindi
Hópbifreið fyrir fleiri en 8 farþega, 23 ára.
B/far réttindi
Farþegaflutningar í atvinnuskyni á B bifreið, 20 ára.
Endurmenntun atvinnubílstjóra
35 stunda endurmenntun fyrir atvinnuréttindi.
Næstu námskeið í meiraprófi
Sjá öll námskeiðÖll bókleg námskeið fara fram í fjarnámi. Þú getur tekið þau hvar sem er á landinu.
