Fara í meginmál
Aukin ökuréttindi

C1 réttindi

C1 leyfir þér að aka vörubifreið sem er þyngri en 3.500 kg en fer ekki yfir 7.500 kg. Aldursmarkið er 18 ár og fullnaðarskírteini fyrir B-flokk er skilyrði.

Hvað C1 leyfir þér að aka

C1 nær yfir vörubifreiðar sem eru þyngri en 3.500 kg að leyfðri heildarþyngd en fara ekki yfir 7.500 kg. Bifreiðin má vera gerð fyrir mest átta farþega auk ökumanns. Eftirvagn má fylgja ef hann er ekki þyngri en 750 kg.

Í reynd er þetta flokkurinn sem menn lenda í þegar bíllinn í vinnunni stækkar. Minni kranabílar, dreifibílar, þjónustubílar iðnaðarmanna og stærri húsbílar eru gjarnan skráðir 4.000 til 7.000 kg að leyfðri heildarþyngd. Skráða þyngdin ræður, ekki hvað er á pallinum þann daginn. Bíll sem er skráður 5.900 kg krefst C1 þótt hann sé tómur.

Eftirvagn sem er þyngri en 750 kg aftan í C1 bifreið kallar á sérstök réttindi, C1E. Þau eru stutt viðbót eftir að C1 er komið á skírteinið: lesa um C1E og D1E.

C1 í stuttu máli

18 ára
Lágmarksaldur fyrir C1
7.500 kg
Efri þyngdarmörk bifreiðarinnar
220.000 kr.
Verð á C1 námskeiði hjá Aktu
62 stundir
Bóklegt nám og sérnám samkvæmt námskrá

Aldur og forkröfur

Aldursmarkið fyrir C1 er 18 ár.

Þú þarft að vera komin eða kominn með fullnaðarskírteini í B-flokki áður en C1 námið hefst. Venjulegur umsækjandi getur því ekki byrjað sex mánuðum fyrir 18 ára afmælið. Sá sem fékk bráðabirgðaskírteini 17 ára getur fyrst fengið fullnaðarskírteini eftir að hafa haft bráðabirgðaskírteini samfellt í eitt ár, farið í akstursmat með fullnægjandi árangri og uppfyllt skilyrði um akstursferil.

Ertu á óvenjulegri leið, til dæmis með skírteini sem var fært yfir frá öðru landi, er rétt að fá eigin stöðu staðfesta hjá sýslumanni eða Samgöngustofu áður en þú kaupir námið.

Sæktu um námsheimild fyrir C1 hjá sýslumanni um leið og þú skráir þig. Umsókninni fylgir heilbrigðisvottorð sem má ekki vera eldra en þriggja mánaða, og ljósmynd ef mynd er ekki þegar til í kerfinu. Þú getur hafið bóklega námið á meðan umsóknin er í vinnslu, en námsheimildin þarf að liggja fyrir áður en verklegt ökunám hefst. Við förum yfir þetta með þér við skráningu.

Hvað er kennt

Bóklegi hlutinn skiptist í fimm námsgreinar:

  • Umferðarsálfræði, 12 stundir
  • Umferð og samfélag, 12 stundir
  • Bíltækni, 12 stundir
  • Skyndihjálp, 16 stundir
  • Stór ökutæki, 10 stundir

Samtals eru þetta 62 kennslustundir. Fyrstu fjórar greinarnar mynda 52 stunda grunnnámið sem allir nemendur í auknum ökuréttindum sitja, og það nýtist óskert síðar. Bætir þú við C, D1 eða leigubifreiðaréttindum þarftu ekki að endurtaka þær stundir. Þess vegna eru viðbótarleiðirnar ódýrari en full námskeið.

Stundirnar 62 koma úr námskrá aukinna ökuréttinda og eru þær sömu í öllum ökuskólum. Verklega þjálfunin er sex ökutímar, eða átta séu réttindin ætluð til aksturs í atvinnuskyni. Bóklega námið fer fram á fjarfundum í rauntíma með kennara eða í staðnámi.

Námskráin gerir líka kröfu um lokapróf sem ökuskólinn sjálfur leggur fyrir. Hjá Aktu er skólaprófið ein kennslustund, 45 mínútur. Því eru ekki ætlaðar stundir í námskránni og það telst ekki með í stundafjöldanum hér að ofan. Prófið er samt raunveruleg hindrun: standist nemandi það ekki staðfesta kennararnir ekki námið.

Ferlið

Leiðin í gegnum C1 námið

Sæktu um námsheimild

Umsókn um C1 fer til sýslumanns ásamt heilbrigðisvottorði sem er ekki eldra en þriggja mánaða. Sýslumaður sendir námsheimildina áfram til Frumherja.

Kláraðu bóklega hlutann

62 kennslustundir á fjarfundum með kennara eða í staðnámi. Fundirnir eru á fastri stundaskrá.

Skólapróf og bóklegt próf

Skólaprófið hjá Aktu er ein kennslustund og þarf að standast. Að því loknu tekur þú skriflega prófið hjá Frumherja.

Ökutímar og verklegt próf

Sex ökutímar, átta fyrir atvinnuréttindi. Prófdómari Frumherja tekur svo verklega prófið og réttindin eru skráð á skírteinið.

Næstu skref

Hvað C1 opnar fyrir þig

Grunnnámið liggur fyrir um leið og C1 er komið á skírteinið, svo hinar leiðirnar verða styttri og ódýrari. Verðin hér að neðan eru það sem viðbótin kostar hjá okkur.

Full C réttindi

Engin efri þyngdarmörk á bifreiðinni

275.000 kr.
Verð sem viðbót við C1
21 árs
Aldursmark
  • Sérnámið Stór ökutæki er klárað upp í 32 stundir, 22 stundir til viðbótar
  • Skólapróf, ein kennslustund
  • Fullt C námskeið kostar 395.000 kr. til samanburðar
Um C réttindi

C1E eftirvagn

Eftirvagn yfir 750 kg aftan í C1 bifreið

90.000 kr.
Verð
18 ára
Aldursmark
  • Fjórar kennslustundir í eftirvögnum, auk skólaprófs sem er ein kennslustund
  • Fjórir ökutímar
  • Samanlögð heildarþyngd allt að 12.000 kg
Um C1E og D1E

D1 hópbifreið

Minni hópbifreiðar sem eru ekki lengri en 8 metrar, mest 16 farþegar auk ökumanns

105.000 kr.
Verð sem viðbót við C1
21 árs
Aldursmark
  • Ferða- og farþegafræði, 16 stundir
  • Skólapróf, ein kennslustund
  • Leigubifreiðaréttindi ofan á C1 kosta 95.000 kr.
Yfirlit yfir meirapróf

Skyldar síður

Algengar spurningar um C1

Flettu upp leyfðri heildarþyngd í skráningarskírteini bifreiðarinnar. Almenna reglan er að bifreið yfir 3.500 kg og að hámarki 7.500 kg krefjist C1. Undantekning gildir fyrir vörubifreið sem er knúin óhefðbundnu eldsneyti og er að hámarki 4.250 kg, ef B-skírteini ökumanns var gefið út að minnsta kosti tveimur árum áður, ekið er án eftirvagns, umframþyngdin stafar aðeins af knúningskerfinu og flutningsgetan hefur ekki aukist. Fari bifreiðin yfir 7.500 kg dugar C1 ekki og þá þarf C.

Nei. C er sjálfstæð leið ofan á fullnaðarskírteini í B-flokki, en aldursmarkið þar er 21 árs. Sértu þegar með C1 styttist námið og viðbótin kostar 275.000 kr. í stað 395.000 kr. fyrir fullt C námskeið.

C1 kostar 220.000 kr. hjá Aktu. Innifalið er bóklega námið, sérnámið og verklega kennslan. Sjá verðlistann fyrir aðra flokka og viðbótarleiðir.

Já. Bóklegi hlutinn er kenndur á fjarfundum í rauntíma með kennara, samkvæmt stundaskrá. Verkleg kennsla og próf fara fram í eigin persónu.

Já, ef þú hefur lokið að minnsta kosti 12 stunda skyndihjálparnámskeiði á síðustu tveimur árum. Þú þarft samt að sækja síðasta hluta skyndihjálparnámsins sem fjallar um umferðarslys og framvísa staðfestingu á fyrra náminu.

Skráðu þig í C1 og sjáðu þitt verð

Veldu réttindin sem þú ert með og þau sem þú vilt bæta við, þá reiknast verðið miðað við þína stöðu.