Fara í meginmál
Aukin ökuréttindi

D réttindi fyrir hópbifreið

D er þyngsti farþegaflokkurinn. Með honum máttu aka rútu, strætisvagni eða ferðabíl sem tekur fleiri en 8 farþega auk ökumanns. Hér eru aldursmörkin, námið, verðið og styttri leiðirnar fyrir þá sem eru þegar með réttindi.

Hvað D réttindi leyfa

D réttindi ná yfir hópbifreiðar sem eru gerðar fyrir fleiri en 8 farþega auk ökumanns. Þar undir fellur allt frá 20 manna ferðabíl upp í fulla rútu í áætlunarakstri. Eftirvagn má fylgja ef hann vegur ekki meira en 750 kg.

Þyngri eftirvagn kallar á DE réttindi til viðbótar. Ætlirðu að draga farangurskerru eða vélsleðavagn aftan í rútu skaltu láta okkur vita áður en þú skráir þig, því þá bætist eftirvagnahluti við námið og það þarf að skipuleggja frá byrjun.

D er farþegaflokkur og kemur ekki í staðinn fyrir vörubifreiðaréttindi. Vörubifreið yfir 3.500 kg krefst að jafnaði C1 eða C. Undantekning gildir fyrir vörubifreið sem er knúin óhefðbundnu eldsneyti og er að hámarki 4.250 kg, ef B-skírteini ökumanns var gefið út að minnsta kosti tveimur árum áður, ekið er án eftirvagns, umframþyngdin stafar aðeins af knúningskerfinu og flutningsgetan hefur ekki aukist. Margir þurfa bæði vöru- og farþegaréttindi og þá getur styttri námsleið átt við.

Þeir sem sækja D hjá okkur eru oftast á leið í hópferðaakstur, strætó eða skólaakstur. Nokkrir eru þegar á vörubíl og vantar réttindin fyrir sumarvertíðina í ferðaþjónustu. Námið er það sama hjá öllum. Verðið er það ekki, því fyrri réttindi stytta leiðina.

Minni hópbifreiðar, sem eru ekki lengri en 8 metrar og taka mest 16 farþega auk ökumanns, falla undir D1 réttindi. Farþegaflutningar á fólksbifreið falla undir B/far réttindi. Yfirlit yfir alla flokkana er á meiraprófssíðunni.

D í tölum

23 ára
Lágmarksaldur, óháð fyrri réttindum
450.000 kr.
Verð á fullu D námi
100
Kennslustundir í bóklegu og sérnámi samkvæmt námskrá
12
Ökutímar að lágmarki með ökukennara
Námið

Svona er námið byggt upp

Námskráin telur 100 kennslustundir í bóklegu og sérnámi. Skólaprófið kemur þar ofan á og verklegi hlutinn hefst þegar bóklega prófinu er lokið.

Bóklegt grunnnám, 52 kennslustundir

Allir sem taka aukin ökuréttindi sitja sama grunnnámið: umferðarsálfræði 12 stundir, umferð og samfélag 12, bíltækni 12 og skyndihjálp 16. Þessi hluti er kenndur á fjarfundum í rauntíma með kennara. Verklegi hluti skyndihjálpar fer þó fram í staðnámi.

Sérnám fyrir hópbifreið, 48 kennslustundir

Stór ökutæki eru 32 kennslustundir og ferða- og farþegafræði 16. Í seinni hlutanum er farið yfir skipulag ferða, þjónustu við farþega, hvíldartíma og akstursdagbók. Þtta er efnið sem atvinnubílstjórar nota daglega og það vegur þungt í prófinu.

Skólapróf og bóklegt próf

Námskeiðinu lýkur á skólaprófi sem Aktu leggur sjálft fyrir. Það er ein kennslustund, 45 mínútur, og telst ekki með í 100 námskrárstundunum. Standist nemandi það ekki staðfesta kennararnir ekki námið. Að því loknu tekur þú skriflegt próf hjá Frumherja, og fallir þú máttu endurtaka það eftir viku.

Verkleg þjálfun og verklegt próf

Lágmarkið er 12 ökutímar með ökukennara á hópbifreið. Kennslustund er 45 mínútur og flestir þurfa eitthvað umfram lágmarkið áður en þeir eru tilbúnir. Ökukennarinn pantar verklega prófið hjá Frumherja þegar þú ert klár.

Verð og leiðir

Þrjár leiðir að D réttindum

Hafirðu þegar aukin réttindi þarftu ekki að endurtaka bóklega grunnnámið. Verðin hér að neðan eru fullt verð hvers námskeiðs.

Fullt D nám

Fyrir þá sem eru með fullnaðarskírteini í B-flokki og engin aukin ökuréttindi.

450.000 kr.
Verð
23 ára
Lágmarksaldur
  • Bóklegt grunnnám, 52 kennslustundir
  • Stór ökutæki, 32 kennslustundir
  • Ferða- og farþegafræði, 16 kennslustundir
  • Skólapróf, ein kennslustund
  • 12 ökutímar að lágmarki

D viðbót við C

Vörubílstjóri með C hefur þegar setið grunnnámið og stóru ökutækin, svo aðeins farþegahlutinn er ónuminn.

250.000 kr.
Verð
23 ára
Lágmarksaldur
  • Ferða- og farþegafræði, 16 kennslustundir
  • Skólapróf, ein kennslustund
  • Að lágmarki 8 ökutímar á hópbifreið
  • Bóklega grunnnámið er ekki endurtekið

D viðbót við B/far

Fyrir þá sem eru með B/far, viðbótarréttindin fyrir farþegaflutninga á fólksbifreið, og vilja stækka bílinn.

320.000 kr.
Verð
23 ára
Lágmarksaldur
  • Stór ökutæki, 32 kennslustundir
  • Skólapróf, ein kennslustund
  • Ferða- og farþegafræði er þegar lokið
  • Verkleg þjálfun á hópbifreið

Aldur, B-réttindi og leiðin á milli C og D

Algengar spurningar um D

Nei. D byggir á fullnaðarskírteini í B-flokki eins og aðrir flokkar meiraprófs. C er ekki skilyrði. Það sem C gerir er að stytta námið, því bóklega grunnnámið og þjálfunin á stórum ökutækjum liggja þá fyrir.

Já, allt að 750 kg. Þyngri eftirvagn krefst DE réttinda til viðbótar og þá bætist eftirvagnahluti við námið. Hringdu í okkur ef þú þarft að draga þyngri vagn, þá skipuleggjum við námið í einu lagi í stað þess að þú komir aftur seinna.

Bóklegi hlutinn er 100 kennslustundir samkvæmt námskrá, auk skólaprófs sem tekur eina kennslustund. Kennslan fer fram á fastri stundaskrá, hvort sem þú situr tímana á fjarfundi eða í staðnámi. Verklega þjálfunin bætist við eftir bóklega prófið og fer eftir því hversu marga tíma þú þarft umfram lágmarkið. Flestir klára á nokkrum mánuðum með vinnu.

Flest stéttarfélög líta á aukin ökuréttindi sem starfsmenntun og styrkja þau. Efling og Starfsafl greiða allt að 180.000 kr. á ári og allt að 540.000 kr. uppsafnað. Kannaðu réttinn þinn hjá þínu félagi áður en þú greiðir námskeiðið, því sum félög vilja fá umsóknina inn fyrir fram.

Fullt D nám kostar 450.000 kr. D viðbót við C kostar 250.000 kr. og D viðbót við B/far kostar 320.000 kr. Öll verð eru á verðlistanum. Í skráningunni velur þú þau réttindi sem þú ert með og þá reiknast þitt verð.

Tilbúinn í D?

Ertu með C eða B/far fyrir? Merktu það í skráningunni og verðið á D uppfærist miðað við þína stöðu.